Fréttir

Þjónustuskerðing vegna uppfærslu á greiðslukerfum RB, milli kl. 01.00-03.00, aðfararnótt 23. nóvember 2023

Vegna uppfærslu á greiðslukerfum Reiknistofu bankanna verða kerfin ekki aðgengileg milli klukkan 01.00-03.00 aðfararnótt fimmtudagsins 23. nóvember.

Af þessum sökum verður þjónusta bankanna í netbönkum, snjallsímalausnum og útibúi á Keflavíkurflugvelli, sem er opið utan hefðbundins opnunartíma, óaðgengileg eða verulega skert á þessum tíma.

 

Virkni debet- og kreditkorta verður með óbreyttum hætti á þessum tíma.