Fréttir
Mánaðarmótavinnslur klárast á næstu klukkustundum
01.06.2019
Tafir hafa í dag orðið á keyrslum hjá RB vegna mikils álags á kerfum en mánaðarmótin maí/júní eru stærstu mánaðarmótakeyrslur ársins, m.a. vegna launagreiðslna, endurgreiðslna frá skattinum og greiðslna frá Tryggingastofnun Gert er ráð fyrir að öllum keyrslum verði lokið innan nokkurra klukkustunda.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og leggjum allt kapp á að klára málið sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri RB, í síma 898 5001 eða ragnhildur.geirsdottir@rb.is